Anti-Aging Eye Cream Gjafasett
ChitoCare beauty Anti-Aging Repair Serum 2ml
Anti-Aging Repair Serum er öflugur rakagjafi sem stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar. Klínískar prófanir sýna að það dregur úr fínum línum og djúpum hrukkum. Serumið inniheldur lífvirkt sjávarkítósan og hýalúronsýru sem saman endurnæra húðina svo hún öðlast ljóma og unglegri áferð.
Kítósan er náttúrulegt undur úr hafinu sem ver húðina þína og myndar filmu. Það dregur úr roða og pirringi, viðheldur raka og gefur húðinni silkimjúka áferð. Eiginleikar kítósans eru meðal annars græðandi áhrif og öflug vernd, það stuðlar að náttúrulegu viðgerðarferli húðarinnar auk þess að vera bakteríudrepandi.
ChitoCare Repair er einstakt einkaleyfisvarið komplex með andoxunarvirkni sem stuðlar að endurnýjun húðarinnar, viðheldur raka, verndar og seinkar öldrunareinkennum. Það inniheldur hágæða, náttúrulegt sjávarkítósan sem er filmumyndandi líffjölliða framleidd með umhverfisvænni, einkaleyfisvarinni aðferð.
Íslenskar húðvörur
Veldu valmöguleika